Enn tefst afhending á draumfara
Bandaríski flugvélaframleiðandinn Boeing tilkynnti í dag, að afhending nýrra 787 Dreamliner farþegaflugvéla muni enn tefjast og fyrstu kaupendur fái þær ekki í hendur fyrr en á þriðja ársfjórðungi. Til stóð að afhenda fyrstu flugvélarnar í febrúar.
Scott Fancher, aðstoðarforstjóri Boeing, sagði fyrirtækið telji að öllum nauðsynlegum tilraunum og prófunum verði lokið í haust og þá verði hægt að byrja að afhenda vélarnar.
Framleiðsla vélarinn hefur tafist um þrjú ár vegna ýmiskonar vandræða við þróun og smíði vélarinnar og verkföllum í verksmiðjunni en þegar hafa verið pantaðar tæplega 900 vélar sem er met fyrir Boeing-vél á framleiðslustigi. Dreamliner er sögð ákaflega sparneytin og vistvæn.
Icelandair hefur pantað fjórar flugvélar af þessari gerð.



















