Aflaverðmæti eykst
mbl.is
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam tæpum 112 milljörðum króna á fyrstu tíu mánuðum ársins 2010 samanborið við rúma 96 milljarða á sama tímabili árið 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um tæpa 16 milljarða eða 16,5% á milli ára, að sögn Hagstofunnar.
Aflaverðmæti botnfisks var í lok október orðið 78,5 milljarðar og jókst um 16,9% frá sama tíma árið 2009 þegar aflaverðmætið nam 67,1 milljarði. Verðmæti þorskafla var um 37,2 milljarðar og jókst um 25,5% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 13,1 milljarði og dróst saman um 1,6% milli ára. Verðmæti karfaaflans nam 9,8 milljörðum, sem er 18,9% aukning frá árinu 2009. Verðmæti ufsaaflans jókst um 26,5% milli ára og nam 7,2 milljörðum á fyrstu tíu mánuðum ársins 2010.
Verðmæti flatfiskafla nam tæpum 8,1 milljarði króna í janúar til
október 2010, sem er 3,7% samdráttur frá fyrra ári. Aflaverðmæti
uppsjávarafla jókst um 22,2% milli ára og nam 22,9 milljörðum. Verðmæti
síldaraflans í janúar til október nam tæpum 8 milljörðum sem er 22,3%
samdráttur frá sama tímabili árið 2009. Verðmæti makríls nam 7,9
milljörðum samanborið við 4,5 milljarða fyrstu tíu mánuði ársins 2009.
Verðmæti
afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam
tæpum 45 milljörðum króna og jókst um 25,1% frá árinu 2009. Aflaverðmæti
sjófrystingar voru rúmir 41,4 milljarðar, sem er 24,1% aukning milli
ára. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst
um 27,2% milli ára og var um 16,1 milljarður.



















