Viðskipti
| mbl
| 20.1.2011
| 9:04
Byggingarvísitala hækkar
mbl.is
Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan janúar 2011 hækkaði um 0,6% frá fyrri mánuði samkvæmt útreikningum Hagstofunnar.
Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 0,3%.
Innlent efni hækkaði í verði frá desember um 2,3% en verð á innfluttu efni lækkaði um 0,6%. Launakostnaður lækkaði um 0,8% og kostnaður vegna véla,
flutninga og orkunotkunar hækkaði um 1,8%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















