Facebook aflar 175 milljarða
Samskiptavefsíðan Facebook tilkynnti í gærkvöldi, að hún hefði aflað 1,5 milljarða dala, 175 milljarða króna, í lokuðu hlutafjárútboði meðal hluthafa. Markaðsverðmæti Facebook er samkvæmt þessu um 50 milljarðar dala, jafnvirði 5864 milljarða króna.
David Ebersman, fjármálastjóri Facebook, segir í yfirlýsingu að með þessu nýja hlutafé hafi félagið meira fjárhagslegt svigrúm en áður til að kanna möguleika á að nýta ný tækifæri.
Facebook sagði, að bandaríski fjárfestingarbankinn Goldman Sachs hefði lokið lokuðu hlutafjárútboði meðal hluthafa, sem búa utan Bandaríkjanna og hefði eftirspurn eftir hlutafénu verið mikil.
Að auki keyptu Digital Sky Technologies í Rússlandi, The Goldman Sachs Group, Inc., og sjóðir í vörslu Goldman Sachs keyptu 500 milljóna dala hlut í Facebook á gengi sem miðast við 50 milljarða dala verðmatið.
Facebook sagðist reikna með að hluthafar yrðu fleiri en 500 á þessu ári og að það myndi hefja birtingu á ársfjórðungslegum uppgjörum í lok apríl.
Nærri 600 milljónir notenda eru nú skráðir á Facebook.



















