Bílasala fer fremur hægt af stað
Heiðar Júlíus Sveinsson, framkvæmdastjóri bifreiðaumboðsins B&L, segir að árið fari fremur hægt af stað í bílasölu. Þó sé nokkuð um fyrirspurnir og aukinn áhuga, „en fólk virðist taka sér almennt lengri tíma núna en áður í að taka ákvörðunina um bifreiðakaup,“ segir hann.
Heiðar segir aðspurður að ekki sé hægt að fullyrða að skuldsett bifreiðakaup hafi runnið sitt skeið á enda. Hægt sé að fá lán til bifreiðakaupa, en eins og er virðist bifreiðakaupendur ekki þurfa jafn mikið á lánum að halda og undanfarin ár. „Ég er þess fullviss að sá tími mun koma, að fólk fari að taka lán til bifreiðakaupa í vaxandi mæli á ný,“ segir hann. „Það segir sig sjálft, því á endanum þarf að endurnýja bílaflotann.“
Eins og fram hefur komið tóku breytingar á vörugjöldum bifreiða gildi um áramótin. Heiðar segir að breytingarnar hafi nokkur lækkunaráhrif á verðið hjá B&L. „Það eru þá helst þeir bílar frá þeim sem eru komnir hvað lengst í framleiðslu á sparneytnum vélum: BMW og Renault, auk þess sem dísilbílar frá öðrum framleiðendum lækka töluvert,“ segir hann.
Aðspurður hvort ekki sé meira að gera í þjónustu eftir hrun, með hækkandi aldri bílaflotans, segir Heiðar að þar sé nokkuð mikið að gera. „Við höfum líka brugðist við gengisfallinu með því að leita leiða til að útvega ódýrari varahluti, en framleiðendur hafa komið til móts við okkur í því sambandi,“ segir hann.
Íslandsbanki á meirihluta af kröfum í B&L og Ingvar Helgason, sem sameinuðust á árinu 2009. Undanfarið hefur verið unnið að endurskipulagningu fyrirtækjanna og stefnt er að því að færa meirihlutaeignarhald yfir í Miðengi, eignaumsýslufélag Íslandsbanka, áður en þau verða seld.



















