Viðskipti
| mbl
| 28.1.2011
| 10:03
Hagvöxtur í Litháen
Hagvöxtur mældist í Litháen í lok síðasta árs en á síðasta ársfjórðungi jókst verg landsframleiðsla um 1,2% miðað við sama ársfjórðung árið 2009.
Vilija Lapeniene, forstjóri hagstofunnar í Litháen, segir að landið sé smátt og smátt að komast upp úr öldudalnum en hagkerfi Litháens dróst saman um 14,9% árið 2009.
Mikill efnahagsuppgangur var í Litháen á síðasta áratug, einkum eftir að landið gekk í Evrópusambandið árið 2004.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















