Iceland selt á árinu
Skilanefnd Landsbankans er að undirbúa sölu á 67% hlut bankans í bresku verslunarkeðjunni Iceland og reiknar með að fá allt að 1,5 milljarða punda, 280 milljarða króna, fyrir fyrirtækið. Breskir fjölmiðlar segja að Landsbankinn kunni einnig að selja 65% í leikfangakeðjunni Hamleys.
Páll Benediktsson, talsmaður skilanefndarinnar, segir við breska blaðið Daily Telegraph, að skilanefndin sé um það bil að útnefna sérfræðinga til að sjá um söluna á Iceland og sé reiknað með að söluferlinu ljúki innan 10 mánaða.
Telegraph segir, að Malcolm Walker, forstjóri og stofnandi Iceland, muni væntanlega leggja fram tilboð í fyrirtækið en hann á sjálfur 24% hlut. Walker bauð 1 milljarð punda í hlut Landsbankans á síðasta ári en því tilboði var hafnað.
Telegraph segir, að fréttir hafi borist um að ónafngreindir auðkýfingar frá olíuríki við Persaflóa hafi í kjölfarið gert Landsbankanum tilboð sem hljóðaði upp á 1,5 milljarða punda.
Skilanefnd Landsbankans ræður einnig yfir 35% hlut í verslunarkeðjunni House of Fraser og 66% í skartgripakeðjunni Aurum. Breskir fjölmiðlar sögðu um helgina að Landsbankinn væri að undirbúa sölu á House of Fraser en Páll hefur borið það til baka. Þá er ekki talið að Aurum verði til sölu á næstunni.
Telegraph hefur eftir heimildarmanni, að Landsbankinn hafi ákveðið að selja Iceland fyrst vegna þess hve fyrirtækinu hafi gengið vel eftir að Walker tók aftur við stjórnartaumunum.
Hann stofnaði Iceland árið 1970 og byggði fyrirtækið upp. Árið 2001 var honum vikið úr forstjórastarfi eftir að Iceland sendi frá sér afkomuviðvörun en Walker hafði þá skömmu áður selt hlutabréf í fyrirtækinu fyrir 13,5 milljónir punda.
Breska efnahagsbrotadeildin rannsakaði málið en komst að þeirri niðurstöðu að Walker hefði engin lög brotið. Telegraph segir að Walker hafi verið afar reiður yfir þeirri meðferð sem hann sætti innan Iceland, og reiðin hafi einkum beinst að Bill Grimsey, sem náði völdum í fyrirtækinu og tók við forstjórastarfi þegar Walker var í fríi.
Baugur og fleiri fjárfestar keyptu Big Food Group, móðurfélag Iceland og fleiri félaga, árið 2005 og þá varð Walker aftur forstjóri.



















