Viðskipti
| mbl
| 31.1.2011
| 11:25
Spá 0,25-0,5% lækkun vaxta
Greiningardeildir bankanna gera almennt ráð fyrir því að peningastefnunefnd Seðlabankans muni á miðvikudag lækka stýrivexti bankans. Í Markaðsvísi MP banka er því spáð að vextirnir muni lækka um 0,25 prósentur, Greining Íslandsbanka spáir 0,5 prósentna lækkun og það sama hefur Greiningardeild Arion banka gert.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















