Viðskipti
| mbl
| 31.1.2011
| 16:45
WTO segir Boeing hafa fengið ríkisstyrki
Alþjóðaviðskiptastofnunin, WTO, segir í nýrri skýrslu að bandarísku flugvélaverksmiðjurnar Boeing hafi fengið ólöglega ríkisstyrki. Skýrslan hefur ekki verið birt og verður ekki birt fyrr en í vor, en evrópski flugvélaframleiðandinn Airbus segir að fram komi að Boeing hafi verulega og ólöglega ríkisstyrki í marga áratugi.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















