Viðskipti
| mbl
| 2.2.2011
| 16:06
| Uppfært
17:16
Hagnaður hjá Marel
Hagnaður af heildarstarfsemi Marels árið 2010 eftir skatta var 13,6 milljónir evra, tæpir 2,2 milljarðar króna á núverandi gengi, samanborið við 11,8 milljón evra tap árið á undan.
Í tilkynningu frá félaginu segir, að árið 2010 hafi verið mjög gott hjá Marel. Tekjur af kjarnastarfsemi námu 582,1 milljónum evra, sem sé 34% aukning miðað við árið á undan. Pantanabókin hafi styrkst jafnt og þétt og var 162,2 milljónir evra í árslok, sem sé met hjá fyrirtækinu og 53% aukning miðað við sama tíma fyrir ári.
|
|
Uppgjör Marels |
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















