Viðskipti
| mbl
| 2.2.2011
| 14:35
Lánshæfiseinkunn Írlands lækkar
Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor's lækkaði í dag lánshæfiseinkunn írska ríkisins. Var einkunn fyrir langtímaskuldbindingar lækkuð úr A í A- og fyrir skammtímaskuldbindingar úr A-1 í A-2.
S&P tilkynnti jafnframt, að lánshæfiseinkunn Írlands hefði verið sett á athugunarlista með neikvæðum horfum í ljósi lánsfjárþarfar fjármálamarkaðsins á Íslandi.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















