Eyrir skilar 8,2 milljarða hagnaði
Eyrir Invest, sem er stærsti eigandi Marels og á stóran hlut í Össuri, skilaði 52 milljóna evra hagnaði árið 2009, sem samsvarar um 8,2 milljörðum króna á gengi dagsins í dag. Árið 2009 var 24 milljóna evra tap á rekstri félagsins. Eignir Eyris nema 426 milljónum evra og eigið fé félagsins var 187 milljónir evra í árslok og eiginfjárhlutfall því 44 prósent.
Í tilkynningu segir að í árslok 2010 hafi Eyrir gert samkomulag um langtíma bankalán að fjárhæð 150 milljónir evra, en lánin eru í erlendri mynt og eru með lokagjalddaga í maí 2014.
Í tilkynningunni er haft eftir Árna Oddi Þórðarssyni, forstjóra Eyris, að staða Eyris sé sterk. „Í fjárfestingarstarfssemi er betra að meta árangur yfir lengri tímabil en einungis eitt ár í senn. Við erum stolt af því hvernig tekist hefur að skapa verðmæti í Eyri á síðustu 3 árum við um margt erfiðar aðstæður, sem og á þeim 10 árum sem liðin eru frá stofnun félagsins. “



















