Viðskipti
| mbl
| 8.2.2011
| 14:52
2800 milljarða tap
Anglo Irish Bank á Írlandi segist reikna með því, að tap á síðasta ári hafi numið 17,6 milljörðum evra, jafnvirði nærri 2800 milljarða króna. Írsk stjórnvöld þjóðnýttu bankann í byrjun ársins 2009 og hafa þurft að leggja honum til gríðarlega fjármuni.
Í yfirlýsingu frá bankanum segir, að þrátt fyrir þetta uppfylli stofnunin kröfur um eiginfjárhlutfall, sem írski seðlabankinn hefur sett.
Anglo Irish tapaði 12,7 milljörðum evra á árinu 2009. Bankinn hefur fengið samtals 29,3 milljarða evra í framlag frá írska ríkinu frá því fjármálakreppan hófst haustið 2008.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















