Dregur úr hagnaði Toyota
Hagnaður japanska bílaframleiðandans Toyota Motor Corp. nam 93,63 milljörðum jena, 128 milljörðum króna, á síðasta fjórðungi ársins 2010. Á sama tímabili árið 2009 var hagnaðurinn 153 milljarðar jena og er samdrátturinn því 39%.
Sölutekjur námu 4,67 billjónum jena og drógust saman um 11,7% milli ára.
Þetta var þriðji fjórðungur rekstrarárs Toyota og félagið hækkaði afkomuspá sína fyrir rekstarárið í heild, bæði varðandi tekjur og hagnað. Segir fyrirtækið að ástæðan sé almennur uppgangur í bílasölu á heimsmarkaði.
Toyota býst nú við að selja 7,48 milljónir bíla á rekstrarárinu, sem lýkur 31. mars. Fyrri spá gerði ráð fyrir 7,1 milljón seldum bílum. Þá býst fyrirtækið nú við 490 milljarða jena hagnaði. Fyrri afkomu spá gerði ráð fyrir 350 milljarða jena hagnaði.



















