Viðskipti
| mbl
| 8.2.2011
| 9:00
| Uppfært
16.12.2011
9:13
Vöruskipti hagstæð í janúar
Sjávarafurðir eru tæplega 40% alls útflutnings. mbl.is
Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar var útflutningur 43,5 milljarðar króna og innflutningur 35 milljarðar króna. Vöruskiptin í janúar, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um tæpa 8,5 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum.
Afgangur hefur nú verið á vöruskiptum samfellt frá því í janúar 2009. Í janúar í fyrra var afgangurinn 5,8 milljarðar króna og var því 2,7 milljörðum meiri nú.
Á síðasta ári var afgangur á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, 118,6 milljarðar króna en árið áður voru vöruskipti hagstæð um 87,3 milljarða á sama gengi. Iðnaðarvörur voru 55,5% alls útflutnings en sjávarafurðir 39,3%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















