Viðskipti
| mbl
| 9.2.2011
| 7:25
Mikið tap hjá SAS
AP
Norræna flugfélagið SAS tapaði 2,2 milljörðum sænskra króna, nærri 40 milljörðum íslenskra króna, eftir skatta á síðasta ári samanborið við 2,9 milljarða sænskra króna árið 2009.
Tap á síðasta ársfjórðungi nam 464 milljónum sænskra króna fyrir skatta.
Félagið segir, að útlit sé fyrir tap á rekstrinum á fyrsta fjórðungi ársins þótt afkoman verði betri en á sama tímabili á síðasta ári. Hins vegar sé mögulegt að afkoman á árinu öllu verði réttu megin við strikið. Það sé þó háð því að aðstæður batni á norrænum markaði og að ekkert óvænt komi upp á í rekstrinum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















