Viðskipti
| mbl
| 10.2.2011
| 12:37
Englandsbanki milli steins og sleggju
Englandsbanki ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum í 0,5%. Stýrivextir hafa nú verið í sögulegu lágmarki í Bretlandi í tvö ár og hefur Englandsbanki ekki séð ástæðu til þess að hækka þá þrátt fyrir að verðbólga hafi mælst að undanförnu yfir markmiðum bankans.
Verðbólga hefur mælst yfir 2% verðbólgumarkmiði bankans í eitt ár. Hún mældist 3,7% í desember og samkvæmt breska blaðinu The Daily Telegraph gera spár fyrir að hún fari í 5% á næstu mánuðum. Hinsvegar er Englandsbanki milli steins og sleggju þegar kemur að vaxtaákvörðunum þar sem að lítill kraftur er í breska hagkerfinu. Landsframleiðslan dróst til að mynda saman um 0,5% á síðasta fjórðungi í fyrra.
The Telegraph segir hinsvegar að væntingar fari nú vaxandi um að Englandsbanki hækki stýrivexti á næstu mánuðum og búast margir við vaxtahækkun í vor.

© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin