Tchenguiz-bræður reyna að stefna Kaupþingi
Bræðurnir Vincent og Robert Tchenguiz reyna nú að fá dómstóla í Lundúnum til að taka fyrir innheimtumál þeirra gegn Kaupþingi, að því er kemur fram í breska blaðinu Daily Telegraph í dag.
Blaðið segir að fjárhaldsmenn bræðranna reyni að fá viðurkenningu á því að þeir eigi kröfur í bankann þótt fyrir liggi, að þeir skulduðu Kaupþingi báðir milljónir punda þegar bankinn fell í október 2008.
Sjóður, sem tengist Vincent Tchenguiz, vill fá viðurkennda 1,65 milljarða punda forgangskröfu í bú bankans og sjóður í eigu Roberts Tchenguiz telur sig eiga 510 milljóna punda kröfu. Slitastjórn bankans hafnaði báðum kröfunum í fyrra.
Telegraph segir, að fram hafi komið í réttarsal í Lundúnum gær, að slitastjórnin sé andvíg því að málið verði tekið fyrir í rétti í Bretlandi. Bræðurnir eru einnig að höfða mál gegn Kaupþingi á Íslandi.
Robert Tchenguiz var stærsti einstaki viðskiptavinur Kaupþings fyrir fall bankans. Hann sat einnig í stjórn Exista, sem var stærsti hluthafinn í Kaupþingi.




















