Viðskipti
| mbl
| 11.2.2011
| 18:36
Gengi bréfa Nokia hrundi
Gengi hlutabréfa finnska farsímaframleiðandans Nokia lækkaði um 14,2% í kauphöllinni í Helsinki í dag.
Sérstakur markaðsdagur var hjá Nokia í dag en fyrirtækið gaf ekki út afkomuspá fyrir árið 2011. Þótt fyrirtækið tilkynnti í morgun, að það hefði gert samkomulag við hugbúnaðarframleiðandann Microsoft um þróun snjallsíma túlkuðu fjárfestar þetta þannig að staða Nokia væri slæm.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















