Hlutabréf hækkuðu eftir afsögn Mubaraks
Hlutabréf hækkuðu í verði bæði vestan hafs og austan þegar fréttist að Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, hefði stigið af stóli. Hlutabréfavísitölur í kauphöllum Evrópu hækkuðu í dag.
Hlutabréfavísitölur lækkuðu fram eftir degi og var lækkunin rakin til óvissu vegna stöðu mála í Egyptalandi. Einkum vegna þeirra áhrifa sem óvissan gæti haft á siglingar um Súes-skurð.
FTSE 100 vísitalan í London hækkaði um 0,71%, CAC 40 í París hækkaði um 0,15% og DAX vísitalan þýska hækkaði um 0,42%.
Vísitölur Dow Jones, NASDAQ og S&P 500 hækkuðu einnig á Wall Street í dag. Hækkunin í Bandaríkjunum er einnig rakin til aðgerða sem ríkisstjórn Obama boðaði í dag vegna húsnæðismarkaðarins þar í landi.
Hann leggur meðal annars til að krafist verði lágmarks útborgunar við fasteignakaup.



















