Miklar afskriftir hjá FIH
Hagnaður danska bankans FIH, sem áður var í eigu Kaupþings, nam 316 milljónum danskra króna fyrir skatta á síðasta ári, 6,7 milljörðum íslenskra króna.
Á síðasta fjórðungi ársins var hins vegar 230 milljóna danskra króna tap á rekstri bankans, aðallega vegna mikilla afskrifta sem námu rúmum milljarði danskra króna. Segir stjórn bankans að það sé ekki viðunandi niðurstaða.
Alls afskrifaði bankinn eignir og útlán sem námu 2 milljörðum danskra króna á árinu.
Það var einkum sala á hlutabréfum í skartgripaverslunarkeðjunni Pandoru, sem hafði jákvæð áhrif á rekstur FIH en Pandora var sett á markað í fyrra. Hagnaður bankans af hlutabréfasölunni nam 881 milljón danskra króna á síðasta fjórðungi ársins.
FIH reiknar með, að hagnaður á þessu ári verði um 700 milljónir danskra króna fyrir afskriftir og skatta.
Bankinn var áður í eigu Kaupþings en var veðsettur Seðlabankanum. Skilanefnd Kaupþings og Seðlabanki Íslands
seldu í september dönsku lífeyrissjóðunum PFA og ATP og
sænska tryggingarfélagsinu Folksam bankann og gengu kaupin í gegn í janúar.



















