Sami hluthafahópur hjá Brimborg
Egill Jóhannsson, framkvæmdastjóri Brimborgar. Golli Kjartan Þorbjörnsson
Fjárhagslegri endurskipulagningu bifreiðaumboðsins Brimborgar lauk fyrir skömmu. Skuldir fyrirtækisins, sem voru í erlendri mynt, voru lækkaðar af viðskiptabönkum fyrirtækisins og núverandi hluthafar komu inn með nýtt hlutafé samfara því.
Jafnframt komst Brimborg að samkomulagi við hin ýmsu fjármögnunarfyrirtæki um að fallið yrði frá endurkaupaskilyrðum á bifreiðum sem teknar höfðu verið á rekstrarleigu, enda samningar að baki slíku fyrirkomulagi jafnan í erlendri mynt og núverandi staða þeirra langt yfir markaðsverði undirliggjandi bifreiða. Sú lausn var fundin á málinu að fjármögnunarfyrirtækin eignast bílana sem um ræðir, gegn því að Brimborg tæki að sér að selja þá.
Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar, sagði að ekki yrði gefið upp að svo stöddu hversu miklar skuldir yrðu afskrifaðar eða hversu mikið hlutafé fyrirtækisins hefði verið aukið. Egill sagði þó að hluthafahópur fyrirtækisins stæði eftir óbreyttur, enginn banki myndi eignast hlut í Brimborg.
Innbyrðis hlutfallslegar breytingar yrðu hins vegar á hluthafahópnum. Sú veigamesta að Brimborg ehf. mun ekki eiga lengur eigin bréf, og að Egill sjálfur auki hlut sinn úr ríflega 4,7% í tæp 17%. Aðrir hluthafar eru Jóhann Jón Jóhannsson, Arnór Guðbrandur Jósefsson, Margrét Egilsdóttir og Margrét Jóhannsdóttir.
Egill segir að í kjölfar endurskipulagningarinnar hafi verið gerðar mjög varfærnislegar áætlanir um sölu: „Síðustu þrjú árin fyrir hrun seldust um 20.000 nýir bílar á Íslandi ár hvert. Á síðasta ári seldust um 3.000 nýir bílar, en við gerum ráð fyrir að markaðurinn á þessu og næsta ári verði á milli 4.000 og 6.500 bílar á ári.“



















