Viðskipti
| mbl
| 15.2.2011
| 8:32
1,5% hagvöxtur í Frakklandi
Hagvöxtur í Frakklandi mældist 1,5% á síðasta ári en á síðasta fjórðungi ársins óx franska hagkerfið um 0,3%.
Árið 2009 dróst franska hagkerfið hins vegar saman um 2,5%. Var það mesti samdráttur sem mælst hafði í marga áratugi.
Franska hagstofan segir, að dregið hafi úr bæði innflutningi og útflutningi á síðasta ári. Einkaneysla jókst um 0,9% samanborið við 0,5% aukningu árið áður.
Franska stjórnin gerir ráð fyrir 2% hagvexti á þessu ári.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















