Viðskipti
| mbl
| 15.2.2011
| 16:19
Setur yfirráðum banka yfir Bláfugli skilyrði
Boeing 737-þota Bláfugls á Keflavíkurflugvelli.
Samkeppniseftirlitið hefur sett yfirráðum Íslandsbanka og Glitnis yfir fraktflugfélaginu Bláfugli skilyrði en Bláfugl hefur verið undir yfirráðum Icelandair Group.
Bláfugl verður nú undir yfirráðum eignarhaldsfélagsins SPW sem Íslandsbanki og Glitnir hafa stofnað sameiginlega.
au skilyrði sem Samkeppniseftirlitið hefur sett yfirtöku Íslandsbanka og Glitnis á Bláfugli miða að því að flýta sölu fyrirtækisins og draga að öðru leyti úr samkeppnisröskun sem stafað geti af eignarhaldi banka á fyrirtækinu. Segir Samkeppniseftirlitið, að Íslandsbanki og Glitnir hafi undiritað sátt um málið og fallist á að hlíta skilyrðunum.
Helstu skilyrði eru eftirfarandi:
- Selja skal Bláfugl innan tiltekins tíma. Um sölufrestinn ríkir trúnaður, enda gætu slíkir tímafrestir, ef opinberir væru, haft óeðlileg áhrif á söluferli og söluverð.
- Tryggja skal fullt sjálfstæði milli annars vegar Bláfugls og hins vegar keppinauta Bláfugls, sem Íslandsbanki eða Glitnir eiga eða kunna að eignast eignarhluti í. Tekur þetta m.a. til sjálfstæðis gagnvart Icelandair Cargo, keppinauti Bláfugls, en Íslandsbanki á hagsmuni að gæta í því fyrirtæki vegna eignarhluts í Icelandair Group.
- Jafnframt eru sett ýmis skilyrði sem eiga að tryggja að Bláfugl starfi að öðru leyti sem sjálfstæður keppinautur á markaði og keppi á eðlilegum grundvelli. M.a. skal setja fyrirtækinu eðlilegar arðsemiskröfur auk þess sem Íslandsbanka er bannað að hlutast til um viðskipti Bláfugls við viðskiptavini bankans eða önnur fyrirtæki sem bankinn eða Glitnir eiga hlut í.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















