Viðskipti
| mbl
| 16.2.2011
| 11:57
Vilja að forstjóri Nokia verði rekinn
Hópur hluthafa í finnska farsímaframleiðandanum Nokia krefst þess að Stephen Elop, nýr forstjóri fyrirtækisins, verði rekinn og einnig að hætt verði við fyrirhugaða samvinnu Nokia og bandaríska hugbúnaðarframleiðandans Microsoft.
Fram kemur á vef Børsen í Danmörku, að hluthafahópurinn vilji að Nokia leggi áherslu á eigið farsímastýrikerfi, Symbian. Nokia áformar hins vegar að vinna með Microsoft að þróun stýrikerfis fyrir snjallsíma.
Gengi hlutabréfa Nokia hefur lækkað um 19% frá því tilkynnt var um samstarfið við Microsoft. Í dag hækkaði gengið þó um 1,6%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















