Viðskipti
| Morgunblaðið
| 17.2.2011
| 5:30
| Uppfært
9:00
Nokkrir stóðust ekki
Fjármálaeftirlitið (FME) hefur lokið athugun sinni á hæfi og hæfni þeirra sem eiga sæti í stjórn og varastjórn nýju bankanna og eignarhaldsfélaga bankanna.
Í umfjöllun um þetta mál í viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag segir Gunnar Andersen, forstjóri FME, að alls hafi 35 manns verið teknir í löng viðtöl til að kanna hvort hæfi og hæfni væri í samræmi lög og reglur. 26 manns stóðust próf Fjármálaeftirlitsins í fyrstu tilraun.
Ákveðinn fjöldi þeirra sem ekki náðu prófinu í fyrsta skipti sneri til baka og uppfyllti skilyrði FME síðar. Að sögn Gunnars voru þó einhverjir sem ekki náðu prófinu í annað skipti, og einhverjir sem hættu sjálfviljugir í stjórn þeirra banka sem þeir störfuðu fyrir.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















