Aflaverðmæti eykst
mbl.is
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam tæpum 123 milljörðum króna á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2010 samanborið við tæpa 107 milljarða á sama tímabili árið 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um rúma 16 milljarða eða 15,3% á milli ára samkvæmt útreikningum Hagstofunnar.
Aflaverðmæti botnfisks var í lok nóvember orðið 86,7 milljarðar og jókst um 15,8% frá sama tíma árið 2009 þegar aflaverðmætið nam 74,9 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 41,3 milljarðar og jókst um 24% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 14,3 milljörðum og dróst saman um 0,9% milli ára. Verðmæti karfaaflans nam 10,9 milljörðum, sem er 19,7% aukning frá árinu 2009. Verðmæti ufsaaflans jókst um 16,8% milli ára og nam 7,9 milljörðum á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2010.
Verðmæti flatfiskafla nam tæpum 8,6 milljörðum króna í janúar til
nóvember 2010, sem er 6,6% samdráttur frá fyrra ári. Aflaverðmæti
uppsjávarafla jókst um 21,6% milli ára og nam 25,1 milljarði. Verðmæti
síldaraflans í janúar til nóvember nam tæpum 10,2 milljörðum sem er
15,8% samdráttur frá sama tímabili árið 2009. Verðmæti makríls nam 7,8
milljörðum samanborið við 4,5 milljarða fyrstu ellefu mánuði ársins
2009.
Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til
vinnslu innanlands nam rúmum 49,9 milljörðum króna og jókst um 24,8% frá
árinu 2009. Aflaverðmæti sjófrystingar voru rúmir 45,4 milljarðar, sem
er 20,7% aukning milli ára. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til
vinnslu innanlands jókst um 25,6% milli ára og var um 17,6 milljarðar.



















