Viðskipti
| mbl
| 24.2.2011
| 7:24
| Uppfært
7:52
Áfram tap hjá Royal Bank of Scotland
Tap á rekstri breska bankans Royal Bank of Scotland nam 1125 milljónum punda, jafnvirði 214 milljarða króna, á síðasta ári. Árið á undan tapaði bankinn 3607 milljónum punda.
Hagnaður, sem nam 12 milljónum punda, var á síðasta fjórðungi ársins 2010 en á sama tímabili árið á undan var 765 milljóna punda tap á rekstrinum.
Stephen Hester, forstjóri Royal Bank of Scotland, segir að endureisn bankans gangi betur en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Breska ríkið á 83% hlut í bankanum en bresk stjórnvöld komu Royal Bank of Scotland til bjargar í upphafi fjármálakreppunni. Alls fékk bankinn 45 milljarða punda af opinberu fé sem er heimsmet í bankabjörgun.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















