Viðskipti
| mbl
| 25.2.2011
| 9:01
Gjaldþrotum fækkar
Að sögn Hagstofunnar voru 140 ný einkahlutafélög skráð í janúar samanborið við 157 einkahlutafélög í janúar 2010, sem jafngildir tæplega 11% fækkun milli ára. Flest ný einkahlutafélög voru skráð í flokkunum heild- og smásöluverslun og viðgerðir á vélknúnum ökutækjum.
Í janúar voru 95 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 103 fyrirtæki í janúar 2010, sem jafngildir tæplega 8% fækkun milli ára. Flest gjaldþrot voru í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















