Viðskipti
| mbl
| 25.2.2011
| 14:37
Minni hagvöxtur í Bandaríkjunum
Bandaríska hagkerfið stækkaði um 2,8 prósent á ársgrundvelli á fjórða ársfjórðungi síðasta árs, sem er minna en fyrri útreikningar sögðu og er undir spám sérfræðinga.
Áður hafði verið gert ráð fyrir því að hagvöxtur á ársgrundvelli hefði verið um 3,2 prósent í fjórðunginum og höfðu hagfræðingar spáð 3,3 prósenta hagvexti. Er samdrætti í opinberum útgjöldum kennt um minni hagvöxt en gert hafði verið ráð fyrir.
Á árinu 2010 í heild sinni stækkaði bandaríska hagkerfið um 2,8 prósent, sem er mesti hagvöxtur á einu ári í fimm ár. Árið 2009 dróst hagkerfið saman um 2,6 prósent.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















