Hlutabréfa lækka vestan hafs
Frá Kauphöllinni í New York (NYSE). AP
Bandarískar hlutabréfavísitölur lækkuðu töluvert í dag vegna áhyggja af áhrifum hækkandi olíuverðs á verðbólgu og efnahagslegan bata landsins. Dow Jones-vísitalan lækkaði um 1,38%, S&P 500 um 1,57% og Nasdaq um 1,61%.
„Hagvexti og verðlagsstöðugleika stafar ógn af stöðug hækkun olíu og annarrar hrávöru,“ sagði Ben Bernanke, Seðlabankastjóri Bandaríkjanna, við fulltrúadeild Bandaríkjaþings í dag.
Áhyggjur af olíuverði hafa aukist vegna ástandsins í Líbíu, en auk olíu hefur gullverð nú náð methæðum, 1433 bandaríkjadölum á únsu.
Í vitnisburði sínum sagði Bernanke að olíuverðshækkunin væri líklega tímabundin. Þrátt fyrir það, og jákvæða hagvísa sem kynntir voru vestra í dag, virðast fjárfestar hafa sínar efasemdir.
Hlutabréfa fjármálastofnana lækkuðu mörg í verði, en margir þeirra hafa tilkynnt að hugsanlega þurfi þeir að greiða fleiri milljarða bandaríkjadala vegna málaferla tengdum fjármálahruninu.



















