Viðskipti
| mbl
| 1.3.2011
| 8:51
| Uppfært
9:38
Mikill hagvöxtur í Svíþjóð
Sænska hagkerfið óx um 1,2% á fjórða ársfjórðungi síðasta árs samanborið við fjórðunginn á undan og um 7,3% ef miðað er við sama tímabil árið 2009.
Er þetta meiri hagvöxtur en sérfræðingar höfðu spáð. Viðmælendur Dow Jones Newswires gerðu ráð fyrir 0,9% hagvexti á síðasta fjórðungi ársins 2010 og 6,9% á öllu síðasta ári.
Að sögn sænsku hagstofunnar er það einkum einkaneysla og fjárfestingar sem ýta undir sænskan hagvöxt um þessar mundir.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















