Viðskipti
| mbl
| 1.3.2011
| 16:45
Verðtryggð skuldabréf hækka
Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,3 prósent í dag og var lokagildi hennar 202,82 stig. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,37 prósent og sá óverðtryggði um 0,01 prósent. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði nam í dag tæpum 18 milljörðum.
Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 2,12 prósent í dag. Bréf Össurar lækkuðu um 3,9 prósent, Marels um 2,1 prósent og Icelandair um 2,2 prósent.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















