Viðskipti
| mbl
| 2.3.2011
| 16:51
| Uppfært
17:20
Enn hækka verðtryggð bréf
Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,2 prósent í viðskiptum dagsins í dag og var lokagildi hennar 203,18 stig. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,26 prósent en sá óverðtryggði lækkaði hins vegar um 0,02 prósent.
Það sem af er árinu hafa verðtryggð skuldabréf hækkað um 2,41 prósent á meðan óverðtryggð hafa lækkað um 2,65 prósent. Velta á skuldabréfamarkaði í dag nam 6,5 milljörðum króna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















