Viðskipti
| mbl
| 2.3.2011
| 8:26
| Uppfært
9:06
Yfir 20% atvinnuleysi á Spáni
Atvinnuleysi á Spáni jókst í febrúar, en þar eru núna 4,2 milljónir manna án vinnu. Þetta er mesta atvinnuleysi í iðnvæddu ríki í heiminum. Atvinnulausum fjölgaði um rúmlega 130 þúsund manns. Atvinnuleysi í landinu mælist nú rúmlega 20%.
Mari Luz Rodriguez ráðherra atvinnumála á Spáni sagði að atvinnuleysi sé að jafnaði mikið á fyrstu tveimur mánuðum ársins.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















