12,6 milljarða hagnaður Arion banka
Hagnaður Arion banka á árinu 2010 nam 12,6 milljörðum króna eftir skatta samanborið við 12,9 milljarða á árinu 2009. Arðsemi eigin fjár var 13,4% á árinu. Eiginfjárhlutfall bankans styrktist um 5,3 prósentur milli ára og var 19% í árslok 2010.
„Afkoma ársins 2010 er góð og í samræmi við áætlanir. Arðsemi eigin fjár er vel viðunandi í krefjandi umhverfi. Árið einkenndist að miklu leyti af úrvinnslu í skuldamálum heimila og fyrirtækja," er haft eftir Höskuldi Ólafssyni, bankastjóra, í tilkynningu.
Hann segist líta svo á að á árinu 2009 hafi verið róinn lífróður, en á árinu 2010 hafi náðst stöðugleiki í rekstur bankans og góður árangur í úrvinnslumálum. Jafnframt hafi stefna bankans til framtíðar mörkuð og skipulag aðlagað. Á árinu 2011 muni úrvinnslumálum ljúka og hefðbundnari bankastarfsemi taki við sér. „Við erum bjartsýn á að á árinu 2012 muni efnahagslífið hafa náð vopnum sínum á ný."
Hreinar rekstrartekjur Arion banka námu alls 35,6 milljörðum á árinu samanborið við 31,9 milljarð árið 2009. Hreinar vaxtatekjur námu 19,8 milljörðum amanborið við 12,2 milljarða árið 2009. Hreinar þóknanatekjur námu 6,9 milljörðum samanborið við 5,9 milljarða árið 2009.
Reiknaður tekjuskattur nam 3,5 milljörðum en var 2,6 milljarðar 2009. Nýr bankaskattur nam 290 milljónum á árinu.
Útlán til viðskiptavina námu 451,2 milljörðum samanborið við 357,7 milljarða í árslok 2009. Bankinn segir, að aukningin sé einkum tilkomin vegna nýrra útlána sem bankinn fékk í tengslum við breytt eignarhald 8. janúar 2010.
Í lok árs voru 1.260 stöðugildi hjá samstæðunni, samanborið við 1157 í árslok 2009 en starfsmönnum fjölgaði um 154 með tilkomu nýrra dótturfélaga í samstæðuna.
|
|
Tilkynning Arion banka |



















