Viðskipti
| mbl
| 4.3.2011
| 16:12
Fjögur félög hækka í verði
Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands hækkaði um 0,15 prósent í dag og endaði í 1.008,7 stigum. Bréf Marels hækkuðu um 1,22 prósent, bréf BankNordik um 0,38 prósent, Össurar um 0,25 prósent og Icelandair um 0,22 prósent.
Velta á hlutabréfamarkaði nam í dag 345,9 milljónum króna og voru mest viðskipti me bréf Marels. Frá áramótum hefur Úrvalsvísitalan hækkað um 8,02 prósent.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















