Viðskipti
| mbl
| 4.3.2011
| 13:01
Hlutabréf Össurar á athugunarlista
Kauphöll Íslands hefur sett hlutabréf Össurar hf. á athugunarlista eftir að aðalfundur félagsins í dag samþykkti þá ákvörðun stjórnar Össurar að afskrá félagið úr kauphöllinni.
Á aðalfundinum var ákvörðunin samþykkt af hluthöfum sem fóru með 70,47% af atkvæðum sem þátt tóku í kostningunni en hluthafar sem fóru með 29,53% af atkvæðum greiddu atkvæði gegn tillögunni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















