Spkef sameinast Landsbankanum

Fjármálaeftirlitið ákvað á fundi sínum í dag NBI hf. taki yfir rekstur, eignir og skuldbindingar Spkef sparisjóðs með þeim hætti að Spkef sparisjóður verður sameinaður NBI hf. Í hádeginu undirrituðu fjármálaráðherra og Landsbanki Íslands samning um yfirtökuna og samrunann.

Er ákvörðun FME tekin á grundvelli heimildar í VI. ákvæði til bráðabirgða í lögum um fjármálafyrirtæki.

Í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu segir að með þessari ráðstöfun sé tryggt að útgjöld ríkissjóðs vegna Spkef takmarkist við það sem á vanti að heildareignir sparisjóðsins svari til innstæðna. Ríkissjóður muni ekki leggja sjóðnum til nýtt eigið fé, en nýtt eigið fé hefði þurft að nema 8,2 millijörðum króna skv. mati Spkef.

„Samruni Spkef sparisjóðs við NBI hf.  raskar ekki uppgjöri milli Spkef sparisjóðs og fyrirrennara hans, Sparisjóðnum í Keflavík.  Einnig er ljóst að samruninn hafi engin áhrif á rétt slitastjórnar Sparisjóðsins í Keflavík til aðgangs að gögnum og upplýsingum um mál sem þar eru til rannsóknar sem slitastjórnin eða aðrir kynnu síðar að vilja hefja rannsókn á.

Ljóst er að samruni Spkef við Landsbankann hefur umtalsverðar breytingar í för með sér fyrir starfrækslu sparisjóðakerfisins. Bankasýsla ríkisins mun á næstu vikum eiga samráð við einstaka sparisjóði og fjármálastofnanir um málefni sparisjóðanna, en Bankasýslan undirbýr stefnumörkun varðandi framtíðarfyrirkomulag á starfsemi þeirra sparisjóða sem Bankasýslan fer með eignarhluti í.

Landsbankinn hefur upplýst fjármálaráðuneytið um að hann hyggst hafa náið samráð við starfsmenn og heimaaðila á starfssvæði sparisjóðsins vegna þeirra breytinga sem nú verða. Hefur verið lögð á það áhersla af hálfu fjármálaráðherra að tekið verði ríkt tillit til atvinnu- og þjónustuhagsmuna á starfssvæði sparisjóðsins á Suðurnesjum og á norðvestanverðu landinu,“ segir í tilkynningunni.

Skv. ákvörðun FME mun eftirlitið taka yfir vald stofnfjáreigendafundar SpKef sparisjóðs.

Á mánudag mun NBI hf. taka rekstri, eignum og skuldbindingum sjóðsins, skv. samningi milli íslenska ríkisins og NBI hf. um yfirtöku NBI á SpKef.

Fram kemur að um sé að ræða samruna án skuldaskila þannig að SpKef sé algjörlega sameinaður NBI með yfirtöku eigna og skulda (samruni með yfirtöku). Ekki sé þörf á innköllun eða auglýsingu vegna samrunans. 

Þá segir að uppsetning sameiginlegs efnahags- og rekstrarreiknings skuli miðað við 1. janúar 2011, sem teljist vera uppgjörsdagur samrunans skv. samningnum.

Telst SpKef vera slitið frá og með mánudeginum 7. mars kl. 8:30. Fram kemur að ekki sé skylt að gefa út innköllun til lánardrottna vegna slitanna.

Það er mat FME að hagsmunum viðskiptamanna, kröfuhafa og annarra hlutaðeigandi aðila sé gætt að þeirri ráðstöfun sem felst í samkomulaginu.

mbl.is/Eyþór

PDF-skrá Ákvörðun FME
PDF-skrá Fréttatilkynning fjármálaráðuneytisins
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Væntingar aukast með hækkandi sól.

Væntingar vaxa lítillega í maí

11:16 Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maí mánuði, en Væntingavísitala Gallup, sem Capacent Gallup birti í morgun, hækkaði um tvö stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3 stig. Meira »

58 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst

10:53 Í apríl síðastliðnum var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægri orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.
09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
Í gær, 16:15 Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
27.5. Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.
10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Innsýn í reksturinn

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

í gær Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Katalónía óskar eftir aðstoð

Spánverji mótmælir á hraðbraut í Katalóníu.
25.5. Katalónía, ríkasta hérað Spánar, óskaði í dag eftir aðstoð spænska ríkisins til að greiða af lánum. Bankia, einn af stærri bönkum Spánar, var í dag tekinn út úr spænsku kauphöllinni. Lántökukostnaður Spánar er enn að hækka. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Ferrari innkallar 56 bíla

Bifreið af gerðinni Ferrari 458 Italia.
25.5. Orðspor ítalska lúxbílaframleiðandans Ferrari hefur beðið hnekki í Kína eftir að opinberstofnun þar í landi sem fer með gæðaeftirlit lýsti því yfir í dag að bílaframleiðandinn þyrfti að innkalla 56 bifreiðar sem fluttar höfðu verið inn í landið vegna galla. Meira »

1,1 milljarðs rekstrarhagnaður hjá Eimskip

25.5. Heildarvelta samstæðu Eimskips á fyrsta ársfjórðungi ársins 2012 nam 15,3 milljörðum kr. samanborið við 14,3 milljarða kr. árið 2011. Rekstrarhagnaður (EBITDA) var 1,1 milljarður kr. , en var 2,1 milljarður kr. á sama tímabili árið 2011. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ríkisvæðing leigumarkaðarins
Ríkisstjórnin hefur kynnt úrræði á íbúðamarkaði sem eiga í senn að bæta stöðu þeirra sem basla við að eignast þak yfir höfuðið og þó ekki síður þeirra Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir