Viðskipti
| mbl
| 6.3.2011
| 20:40
Kyrrstöðusamningi við Gaum sagt upp
Gaumur, eignarhaldsfélag Bónusfjölskyldunnar, verður fljótlega gert upp. Arion banki hefur rift kyrrstöðusamningi við Gaum, eignarhaldsfélag Bónusfjölskyldunnar, sem gerður var í fyrra.
Gaumur var aðaleigandi Baugs en Baugur hefur verið tekinn til gjaldþotaskipta. Þá tók Arion banki yfir Haga, sem nú er verið að selja.
Fram kom sl. haust, að Arion banki hefði gert kyrrstöðusamning við Gaum, sem þýddi að félagið yrði hvorki tekið til gjaldþrotaskipta né gengið að eignum þess meðan samningurinn væri í gildi.
Að sögn Útvarpsins er Gaumur eignalaust félag en skuldar tugi milljarða.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















