Viðskipti
| mbl
| 6.3.2011
| 12:18
Með 31,6 milljónir í árslaun
Laun Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Íslandsbanka, námu 31,6 milljónum króna á síðasta ári eða sem svarar til rúmlega 2,6 milljóna króna á mánuði. Árið 2009 námu laun Birnu 24,1 milljón króna eða rúmlega 2 milljónum króna á mánuði.
Þetta kemur fram í ársreikningi bankans. Sjö framkvæmdastjórar bankans fengu 147,1 milljón króna í laun á síðasta ári eða 21 milljón króna að jafnaði.
Laun Friðriks Sophussonar, formanns bankaráðs Íslandsbanka, námu 6,2 milljónum króna á síðasta ári en aðrir stjórnarmenn fengu allt að 4,3 milljónir króna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















