Ótrúlegar fréttir af launum

Forsvarsmenn bankanna munu koma á fund viðskiptanefndar Alþingis í fyrramálið til að svara spurningum um afkomuna. Er það að ósk þingmanna Sjálfstæðisflokksins í nefndinni. Segir Guðlaugur Þór Þórðarson, einn þeirra, að fréttir af hagnaði bankanna og launum bankastjóra veki furðu.

„Það hafa komið fram ábendingar um að hagnaður bankanna sé tilkominn vegna þess að lánasöfn þeirra hafi verið endurreiknuð, sem þýðir að það sé verið að afskrifa minna af lánum heimila og fyrirtækja en lagt var upp með. Það er sannarlega ekki svo að atvinnulífið sé á fleygiferð, atvinnustig hátt og hagvöxtur mikill," sagði Guðlaugur Þór.

Hagnaður Íslandsbanka á síðasta ári nam 29,4 milljörðum króna og hagnaður Arion banka nam 12,6 milljörðum króna á síðasta ári. Þá kom fram í ársreikningum bankanna að laun bankastjóranna hafa hækkað töluvert milli ára og nema laun bankastjóra Arion banka á fimmtu milljón á mánuði.

„Fréttir af þessum launum bankastjóra eru ótrúlegar í ljósi aðstæðna," sagði Guðlaugur Þór.  „Eða höfum við misst af einhverju?"

Hann sagði að fróðlegt væri að vita hvernig fulltrúar Bankasýslunnar hefði greitt  atkvæði í bankaráðum bankanna þegar þegar tekin var ákvörun um launahækkun bankastjóranna. „Af hverju er verið að umbuna bankastjórunum með þessum hætti?" spurði Guðlaugur Þór.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Seðlabanki Íslands

Ekki spurning um hvort heldur hvenær

14:40 Greiningardeild Arion banka telur að stutt sé í næstu vaxtahækkun Seðlabanka Íslands en í fundargerð peningastefnunefndar frá síðustu vaxtaákvörðun þann 8. febrúar kemur fram að tveir af fimm nefndarmönnum töldu að hækka ætti vexti. Meira »
Marel

Marel greiðir 6,9 milljónir evra í arð

14:36 Stjórn Marels leggur til að greiddur verði út arður til hluthafa vegna reikningsársins 2011 sem nemur 0,95 evru sentum á hlut, en slík arðgreiðsla samsvarar u.þ.b. 20% af hagnaði ársins. Fyrirhuguð heildararðgreiðsla nemur um 6,9 milljónum evra, 1.144 milljónir króna. Meira »

Afkoma Landsnets versnar milli ára

14:32 Hagnaður Landsnets hf. samkvæmt rekstrarreikningi nam 840 milljónum króna árið 2011 samanborið 3.563 milljón króna hagnað á árinu 2010. Meira »

DataMarket á Bandaríkjamarkað

Hjálmar Gíslason: „ Við stefnum á rétt tæplega 180 milljónir króna í tekjur á þessu ...
11:31 Gagnavinnslufyrirtækið DataMarket hefur undanfarið einbeitt sér að Bandaríkjamarkaði og hefur nú lokið mikilvægum samningum þar og náð í öfluga samstarfsaðila. Meira »

SFO bað Tchenguiz afsökunar

Vincent Tchenguiz.
09:42 Breska efnahagsbrotadeildin, Serious Fraud Office (SFO), hefur sent formlegt bréf til breska kaupsýslumannsins Vincent Tchenguiz, þar beðist er afsökunar á mistökum sem gerð hafi verið þegar hann var handtekinn í mars í fyrra í tengslum við rannsókn á Kaupþingi. Meira »

Loka Apótekaranum á Akranesi

Apótek Vesturlands er orðið eitt á lyfjamarkaði á Akranesi.
08:27 Lyfjaverslun Lyf og heilsa hefur ákveðið að loka lyfjaversluninni Apótekarinn á Akranesi þann fyrsta mars. Apótekið hefur verið opið í verslanamiðstöðinni á Dalbraut 1 frá því Lyf og heilsa lokaði lyfjaverslun við Kirkjubraut á sínum tíma. Meira »

Óbreytt mat hjá Moody's

Stjórnarráð Íslands.
14:23 Matsfyrirtækið Moody's hefur birt álit á lánshæfi íslenska ríkisins. Lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs eru óbreyttar, Baa3 fyrir langtímaskuldbindingar og P-3 fyrir skammtímaskuldbindingar. Horfur eru áfram neikvæðar. Meira »

Íslenskir lífeyrissjóðir með verstu ávöxtun innan OECD

11:05 Ávöxtun íslenskra lífeyrissjóða var umtalsvert verri á árunum 2008-2010 en annarra lífeyrissjóða í OECD. Á þessu árabili skiluðu íslenskir lífeyrissjóðir 8,4% neikvæðri ávöxtun, en lífeyrissjóðir í OECD skiluðu að meðaltali 1,4% neikvæðri ávöxtun. Meira »

Færir Advania forystu?

Færir Advania forystu? myndskeið

Alkemistinn mbl 45 Advania
09:29 Nokkur umræða hefur verið síðustu vikur, sérstaklega á samfélagsmiðlum um nýtt nafn Skýrr eða nafnið Advania. Fljótlega eftir að nafnið var kynnt fóru af stað vangaveltur um að latnesk merking orðanna „Ad vania“ væri „til einskis“ og var Google Translate skrifað fyrir þeirri þýðingu. Meira »

Lækkun á Wall Street

Frá Wall Street
Í gær, 21:18 Helstu hlutabréfavísitölur lækkuðu á Wall Street í kvöld en lækkunin er rakin til hagtalna á evru-svæðinu sem benda til þess að efnahagslægð hafi tekið sér bólfestu þar á ný. Meira »

Skuldabréf seld fyrir 12,5 milljarða

Yfirlit yfir útboð skuldabréfa
Í gær, 18:02 Heildarsala skuldabréfa í verðbréfaútboðum í janúar 2012 nam 12,5 milljörðum króna á söluverði samanborið við 4,1 milljarð mánuðinn áður. Meira »

Kína í krísu eftir 20 ár?

07:07 Kínverjar gætu staðið frammi fyrir efnahagskrísu, hugi þeir ekki að endurbótum á fjármálakerfi sínu á næstu 20 árum. Þetta segir í nýrri skýrslu Alþjóðabankans og kínversku ríkisstjórnarinnar, sem ber heitið „Kína 2030“. Meira »

Olíuverð heldur áfram að hækka

Í gær, 20:41 Heimsmarkaðsverð á olíu hækkaði töluvert í dag og fór verð á Brent-Norðursjávarolíu yfir 123 Bandaríkjadali tunnan og í New York fór verð á hráolíu í 106,47 dali en svo hátt olíuverð hefur ekki sést á mörkuðum síðan í byrjun maí í fyrra. Meira »

Tveir vildu hækka vexti

Seðlabanki Íslands.
Í gær, 17:51 Tveir nefndarmenn í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands greiddu atkvæði gegn tillögu Más Guðmundssonar seðlabankastjóra um að halda stýrivöxtum óbreyttum á síðasta vaxtaákvörðunardegi. Vildu þeir hækka vextina um 0,25 prósentur. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
ISK -   ISK USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF JPY - Japanskt jen  JPY
Gengi gjaldmiðla

Guðmundur um markaðsmál

mynd Ogilvy um prentauglýsingar.
David Ogilvy er oft kallaður faðir nútíma auglýsingamennsku. Hér verða skoðanir hans á því hvernig hægt er að ná hámarks árangri með prentauglýsingum Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir