Gaumur með neikvætt eigið fé vorið 2008
Arion banki hefur rift kyrrstöðusamningi við Fjárfestingafélagið Gaum. Frá þessu greindi Ríkissjónvarpið fyrir skömmu. Arion banki er þó ekki eini kröfuhafi félagsins. Ekki liggur fyrir hver afstaða annarra kröfuhafa félagsins til kyrrstöðusamningsins er nú.
Eigendur Gaums eru fjárfestirinn Jón Ásgeir Jóhannesson og fjölskylda. Í rannsóknarskýrslu Alþingis segir að lán til Gaums og tengdra félaga hafi numið um 279 milljörðum króna við fall bankakerfisins í október 2008, en þar af var langmest fyrirgreiðsla hjá Landsbankanum.
Fram kemur í rannsóknarskýrslunni að strax vorið 2008, fyrir um þremur árum, hafi Gaumur verið með metið neikvætt eigið fé. Félaginu voru lánaðir 30,6 milljarðar króna sumarið 2008 til að kaupa smávöruverslanakeðjuna Haga út úr Baugi. Hluta söluandvirðisins notaði Baugur síðan til að greiða upp lán hjá Kaupþingi, en um helmingur þess var notaður til að kaupa hlutabréf í Baugi, meðal annars af Gaumi. Sumarið 2009 leysti Arion banki síðan til sín félagið 1998 ehf., eignarhaldsfélag Haga. Staða Gaums versnaði nokkuð við þá ákvörðun bankans. Gaumur átti 75% hlut í Baugi, sem hafði í mars 2009 verið tekinn til gjaldþrotaskipta samkvæmt ákvörðun Héraðsdóms Reykjavíkur.



















