Candy-bræður ná undir sig fótunum
Bresku Candy bræðurnir, sem voru í miklum viðskiptum við Kaupþing í Bretlandi fyrir hrun og urðu sjálfir illa úti í fjármálakreppunni, virðast nú vera að ná undir sig fótunum á ný.
Blaðið Daily Telegraph segir, að byggingarverkefni, sem bræðurnir hófu að vinna við fyrir fjórum árum, virðist nú ætla að bera árangur. Um er að ræða nokkra tugi rándýrra íbúða við Hyde Park í Lundúnum, svonefnt Knightbridgeverkefni. Nú sé svo komið að búið sé að selja 50 íbúðir og innan við 30 séu óseldar.
Eitt þakhýsi seldist fyrir 135 milljónir punda, rúma 25 milljarða króna. Kaupandinn var erlendur auðjöfur sem hefur pantað innréttingar fyrir 50 milljónir punda, 9,4 milljarða króna, til viðbótar. Hefur Telegraph eftir sérfræðingum að þetta muni vera dýrasta íbúð í heimi.
Blaðið hefur eftir Nick Candy, að 1,1 milljarðar punda, sem bræðurnir fengu að láni hjá Eurohypo Bank til að fjármagna verkefnið, hafi að mestu verið greiddir til baka. „Afgangurinn verður greiddur um mánaðamótin," sagði hann.
Knightsbridge íbúðirnar kosta frá 6,5 milljónum punda, 1,2 milljörðum króna. Um er að ræða eins herbergis íbúðir. Forsætisráðherra Katar er sagður styðja við verkefnið.
Bræðurnir hófu á sínum tíma að byggja íbúðir eftir að amma þeirra lánaði þeim 6000 pund, rúma milljón króna. Þeir hafa unnið að ýmsum fasteignaverkefnum, þar á meðal með Kaupþingi. Bræðurnir keyptu m.a. land í Beverly Hills í Kalíforníu í félagi við Kaupþing og ætluðu að reisa þar lúxusíbúðir en af því varð ekki.




















