Slim Helú ríkastur í heimi
Mexíkóski auðkýfingurinn Carlos Slim Helú heldur 1. sætinu á nýjum lista bandaríska viðskiptatímaritsins Forbes yfir ríkustu menn heims.
Eignir Slims eru taldar nema 74 milljörðum dala, rúmlega 8600 milljörðum króna og jukust um 20,5 milljarða dala á síðasta ári. Hann á meðal annars America Movil sem er stærsta farsímafélag í Latnesku-Ameríku.
Bill Gates, stofnandi bandaríska hugbúnaðarfyrirtækisins Microsoft, er í 2. sæti á lista Forbes en eignir hans eru taldar nema 56 milljörðum dala. Hann var lengi ríkasti maður heims en hefur í vaxandi mæli notað eignir sínar til góðgerðarmála.
Bandaríski kaupsýslumaðurinn Warren Buffett er í 3. sæti á listanum með 50 milljarða dala eignir. Bernard Arnault, aðaleigandi lúxusvörufyrirtækisins LVMH er í 6. sæti með 41 milljarðs dala eignir.
Alls eru 1210 manns taldir eiga yfir 1 milljarð dala en þeir voru 1011 í fyrra. Milljarðamæringum fjölgar einkum í Asíu en þeir eru enn flestir í Bandaríkjunum.
25 ríkustu einstaklingar í heimi:
- Carlos Slim Helú. Mexíkó. Fjarskipti. 74 milljarðar dala
- Bill Gates. Bandaríkin. Microsoft. 56 milljarðar dala
- Warren Buffett. Bandaríkin. Berkshire Hathaway. 50 milljarðar dala
- Bernard Arnault. Frakkland. LVMH. 41 milljarður dala
- Larry Ellison. Bandaríkin. Oracle. 39,5 milljarðar dala
- Lakshmi Mittal. Indland. Stál. 31,1 milljarður dala
- Amancio Ortega. Spánn. Zara. 31 milljarður dala
- Eike Batista. Brasilía. Námur, olía. 30 milljarðar dala
- Mukesh Ambani. Indland. Olía og gas. 27 milljarðar dala
- Christy Walton og fjölskylda. Bandaríkin. Wal-Mart. 26,5 milljarðar
- Li Ka-shing. Hong Kong. Ýmislegt. 26 milljarðar dala
- Karl Albrecht. Þýskaland. Aldi. 25,5 milljarðar dala
- Stefan Persson. Svíþjóð. H&M. 24,5 milljarðar dala
- Vladimir Lisin. Rússland. Stál. 24 milljarðar dala
- Liliane Bettencourt. Frakkland. L'Oreal. 23,5 milljarðar dala
- Sheldon Adelson. Bandaríkin. Spilavíti, hótel. 23,3 milljarðar dala
- David Thomson and family. Kanada. Fjölmiðlar. 23 milljarðar dala
- Charles Koch. Bandaríkin. Framleiðsla, orka. 22 milljarðar dala
- David Koch. Bandaríkin. Franleiðsla, orka. 22 milljarðar dala
- Jim Walton. Bandaríkin. Walmart. 21,3 milljarðar dala
- Alice Walton. Bandaríkin. Walmart. 21,2 milljarðar dala
- S. Robson Walton. Bandaríkin. Walmart 21 milljarður dala
- Thomas og Raymond Kwok. Hong Kong. Fasteignir. 20 milljarðar
- Sergey Brin. Bandaríkin. Google. 19,8 milljarðar dala
- Larry Page. Bandaríkin. Google. 19,8 milljarðar dala.



















