Viðskipti
| mbl
| 9.3.2011
| 9:26
Fær allt að 1,5 milljarða
Stephen Hester, forstjóri breska bankans Royal Bank of Scotland hefur fengið aukabónus í formi kaupréttar, sem metinn er á 4,5 milljónir punda. Um er að ræða bónus sem er háður því, að bankinn nái markmiðum um afkomu og arðgreiðslur árið 2014.
Segir Sky sjónvarpsstöðin að þetta þýði að launagreiðslur Hesters fyrir síðasta ár gætu numið allt að 7,7 milljónum punda, nærri 1,5 milljörðum króna. Árslaun hans eru 1,2 milljónir króna og áður hafði verið tilkynnt um 2 milljóna punda bónus sem hann fær.
Tap á rekstri Royal Bank og Scotland nam 1125 milljónum punda, jafnvirði 214 milljarða króna, á síðasta ári. Bankinn er að 83% hluta í eigu breska ríkisins.
Fleiri yfirmenn bankans fengu vel borgað fyrir síðasta ár.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















