Viðskipti
| mbl
| 9.3.2011
| 12:53
Gengið ekki lægra frá því í júní
Gengi krónunnar hefur haldið áfram að veikjast síðustu vikuna og er gengisvísitalan nú 215,6 stigum. Segir Greining Íslandsbanka, að gengi krónunnar hafi ekki verið jafn lágt frá því í lok júní í fyrra.
Segir í Morgunkorni Íslandsbanka, að þessa þróun á síðustu dögum megi einna helst rekja til þróunar á gengi krónunnar gagnvart evru eng gengi hennar er nú 161,30 krónur.
Hafi gengi krónunnar í raun ekki verið jafn veikt gagnvart evru síðan um miðjan maí í fyrra.
Um síðustu áramótu var gengi evru rúmar 153 krónur og hefur krónan því veikst um 5% gagnvart evru frá þeim tíma.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















