Viðskipti
| mbl
| 9.3.2011
| 16:27
Mikið tap á rekstri Northern Rock
Tap á rekstri breska bankans Northern Rock, sem breska ríkið tók yfir árið 2007, nam 232,4 milljónum punda fyrir skatta á síðasta ári, nærri 44 milljörðum króna.
Bankanum var skipt í tvo hluta í byrjun síðasta árs, annars vegar svonefndan „slæman banka" þar sem óvissar eignir og útlán voru vistuð, og hins vegar „góðan banka".
Afkoma góða bankans, Northern Rock Plc, var ekki góð á síðasta ári eins og tölurnar sýna en undirliggjandi tap dróst þó saman á síðari hluta ársins.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















