Viðskipti
| mbl
| 10.3.2011
| 14:35
79 þúsund farþegar í febrúar
Icelandair flutti rúmlega 79 þúsund farþega í febrúar sl. og hafa aldrei verið fleiri í febrúarmánuði. Um er að ræða 16% aukningu frá febrúar í fyrra.
Þá jókst sætanýting um 4 prósentustig, hún fór yfir 70%, og hefur aldrei verið svo mikil áður í febrúarmánuði.
Þá flutti Flugfélag Íslands rúmlega 25 þúsund farþega í febrúar. Er það 4% samdráttur frá febrúar á síðasta ári.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















