Fréttaskýring: Laun á bilinu 2-4 milljónir

stækka

mbl.is/Golli

Morgunblaðið Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is
Laun forstjóra stórra íslenskra fyrirtækja liggja á bilinu tvær til fjórar milljónir króna, þótt undantekningar séu þar á. Sést þetta bæði á upplýsingum frá fyrirtækjunum sjálfum í ársreikningum þeirra og einnig er þetta mat sérfræðinga hjá ráðningarskrifstofum.

Þrjú stærstu fyrirtækin, að bönkum undanskildum, eru Össur, Marel og Actavis. Actavis er óskráð félag og þarf því ekki að gefa upplýsingar sem þessar og fékk Morgunblaðið þær ekki þegar eftir því var leitað. Laun og hlunnindi Theo Hoen, forstjóra Marels, voru um 4,8 milljónir króna á mánuði í fyrra, þegar miðað er við gengi evrunnar í dag. Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, var með um 13 milljónir króna í laun á mánuði í fyrra, miðað við gengi bandaríkjadals í dag.

Heildarlaun og hlunnindi Björgólfs Jóhannssonar, forstjóra Icelandair, voru um 3,3 milljónir króna á mánuði og héldust óbreytt frá árinu 2009, samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu og þá voru laun Eggerts B. Guðmundssonar, forstjóra HB Granda, um 2,3 milljónir króna í fyrra miðað við meðalgengi evru á árinu.

Margir forstjórar íslenskra fyrirtækja eru með laun á bilinu 2-4 milljónir, ef marka má tekjublað Frjálsrar verslunar, en taka ber þeim tölum samt með ákveðnum fyrirvara, þar sem í þeirri úttekt geta verið aðrar tekjur en launatekjur, til dæmis fjármagnstekjur. Finnur Árnason, forstjóri Haga telst þar vera með tæpar fjórar milljónir króna á mánuði, Ásgeir Margeirsson, forstjóri Magma á Íslandi, með um 3,1 milljón króna, Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft á Íslandi, með um 2,8 milljónir á mánuði og svo mætti áfram telja.

Laun bankastjóra í meðaltalinu

Fram hefur komið í fréttum að laun Höskuldar Ólafssonar, bankastjóra Arion banka eru um 2,9 milljónir á mánuði, þegar horft er framhjá 10 milljóna króna eingreiðslu, sem hann fékk við ráðningu. Laun Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Íslandsbanka nema um 2,6 milljónum með hlunnindum og laun Steinþórs Pálssonar bankastjóra Landsbankans, 1,1 milljón króna.

Staða Steinþórs er frábrugðin stöðum hinna bankastjóranna tveggja að því leyti að laun hans eru ákveðin af kjararáði, en bankaráð hinna bankanna ákveða sjálf laun bankastjóra viðkomandi banka.

Kjararáð ákveður almennt laun æðstu embættismanna og forstjóra fyrirtækja í ríkiseigu og hvað þá varðar eru þrír menn með sambærileg laun efst í opinbera launastiganum. Þeir Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar og Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans eru allir með svipuð laun. Hörður og Björn eru með um 1.340.000 krónur á mánuði og Már með um 1.300.000 krónur. Eru framlög launagreiðenda í lífeyrissjóð ekki tekin með í þessum tölum. Ef miðað er við um 15% framlag þá má áætla að laun og hlunnindi opinberu forstjóranna séu í kringum 1,5 milljónir króna.

Töluverð umræða spratt upp um launakjör seðlabankastjóra síðasta sumar, þegar svo virtist sem hækka ætti laun hans um tæpa hálfa milljón króna. Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum eru laun hans nú um 1.330.000 krónur, sem áður segir, og því greinilegt að launahækkunin umdeilda hefur ekki gengið í gegn.

„Illa eða alls ekki rökstudd“

Þegar kjararáð úrskurðaði um laun forstjóra Landsvirkjunar lækkuðu þau um 33 prósent frá því sem ráðningarsamningur Harðar Arnarsonar gerði ráð fyrir og gagnrýndi hann ákvörðun ráðsins harkalega á sínum tíma. Í bréfi til Kjararáðs, sem hann sendi í febrúar í fyrra, sagði hann ákvörðunina ýmist illa eða alls ekki rökstudda. Ekki yrði séð við hverja kjararáð miðaði þegar laun forstjóra fyrirtækisins væru ákveðin, en Hörður taldi eðlilegt að miðað væri við laun forstjóra annarra orkufyrirtækja.

Þrátt fyrir yfirlýsingar um að laun embættismanna og forstjóra ríkisfyrirtækja ættu ekki að vera hærri en laun forsætisráðherra virðast ekki allir hafa fylgt þeim fyrirmælum eftir, því á þriðjudag kom fram að fjöldi opinberra yfirmanna hefði ekki lækkað laun sín í samræmi við þau.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Viðskipti »

Væntingar aukast með hækkandi sól.

Væntingar vaxa lítillega í maí

11:16 Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maí mánuði, en Væntingavísitala Gallup, sem Capacent Gallup birti í morgun, hækkaði um tvö stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3 stig. Meira »

58 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst

10:53 Í apríl síðastliðnum var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægri orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.
09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
Í gær, 16:15 Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
27.5. Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.
10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Innsýn í reksturinn

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

í gær Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Katalónía óskar eftir aðstoð

Spánverji mótmælir á hraðbraut í Katalóníu.
25.5. Katalónía, ríkasta hérað Spánar, óskaði í dag eftir aðstoð spænska ríkisins til að greiða af lánum. Bankia, einn af stærri bönkum Spánar, var í dag tekinn út úr spænsku kauphöllinni. Lántökukostnaður Spánar er enn að hækka. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Ferrari innkallar 56 bíla

Bifreið af gerðinni Ferrari 458 Italia.
25.5. Orðspor ítalska lúxbílaframleiðandans Ferrari hefur beðið hnekki í Kína eftir að opinberstofnun þar í landi sem fer með gæðaeftirlit lýsti því yfir í dag að bílaframleiðandinn þyrfti að innkalla 56 bifreiðar sem fluttar höfðu verið inn í landið vegna galla. Meira »

1,1 milljarðs rekstrarhagnaður hjá Eimskip

25.5. Heildarvelta samstæðu Eimskips á fyrsta ársfjórðungi ársins 2012 nam 15,3 milljörðum kr. samanborið við 14,3 milljarða kr. árið 2011. Rekstrarhagnaður (EBITDA) var 1,1 milljarður kr. , en var 2,1 milljarður kr. á sama tímabili árið 2011. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ríkisvæðing leigumarkaðarins
Ríkisstjórnin hefur kynnt úrræði á íbúðamarkaði sem eiga í senn að bæta stöðu þeirra sem basla við að eignast þak yfir höfuðið og þó ekki síður þeirra Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir